Jensína Barnakennari hlýtur að vera í óða önn að undirbúa komandi vetur á Eyjunni um þessar mundir.
Kennarar á meginlandinu eru það sjálfsagt líka!
Af þessu tilefni höfum við lokið við námsefnispakkann sem við útbjuggum í vor – nokkur ný verkefni eru komin inn, auk þess sem skjal ætlað kennurum hefur verið sett inn. Þar má finna leiðbeiningar um það hvernig nota má hluta verkefnanna til þess að leiða nemendur á miðstigi í gegnum vinnuna við kjörbókarritgerð.
Vonandi gagnast verkefnin sem flestum! Ekki hika við að hafa samband við okkur ef einhverjar spurningar vakna ef þið hnjótið um eitthvað í verkefnunum.